Hagfræðingar

Hér sitja tveir hagfræðingar og ræða fjárhagsstöðu þjóðarinnar. Sá til vinstri hefur stýrt fyrirtæki sínu í 60 ár. Ævinlega notað tekjuafgang til að  endurbæta vélar og búnað fyrirtækisins, og styrkja rekstur þess.

Ekki látið gléplast af gylliboðum svokallaðra fjármála sérfræðinga.

Aldrei  greitt sér arð nema afkoma fyrirtækisins hafi leyft það.

Komið á laggirnar fimm útibúum sem öll blómstra þrátt fyrir misjaft gengi þjóðarbúsins.

Sá sem situr til hægri er með átta ára háskólanám í hagfræði í einum af 1000 bestu háskólum veraldarinnar og þótt  víðar væri leitað. Til viðbótar er hann með doktorspróf frá virktum háskóla í Bandaríkjunum.

Allt sem hann hefur komið nálægt hefur farið lóðbeint á hausinn, hvort heldur fyrirtæki sem honum voru færð á silfurfati af Dabba og  Dóra, eða stöndugir bankar sem hann fékk  fyrir lítið, og þurfti aldrei að borga.

Myndin er tekin á Kanaríeyjum  þar sem hagfræðingarnir dvöldu í nokkrar vikur. Sá til vinstri fyrir arð af fyrirtæki sínu.

Sá til hægri fyrir skattfé í boði Seðlabankans.